Iðnaður í þágu umhverfis

Leiðin að kolefnishlutleysi

Elkem starfar með það að markmiði að vera í sátt við samfélagið, stjórnvöld, viðskiptavini, starfsfólk og náttúruna. Áhersla er lögð á nýta auðlindir með ábyrgum hætti og draga markvisst úr umhverfisáhrifum starfseminnar með kerfisbundinni vöktun og stýringu á helstu umhverfisþáttum.

Elkem Ísland, Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið, Þróunarfélag Grundartanga, Orkuveita Reykjavíkur, Orka náttúrunnar og Carbfix undirrituðu samstarfsyfirlýsingu um uppbyggingu loftslagsvænnar starfsemi á Grundartanga í nóvember 2025. Þar sem lagður er grunnur af stórum skrefum í bætta auðlindarnýtingu á svæðinu.

Eitt af meginmarkmiðum samstarfsins er að fanga koldíoxíð (CO₂) til varanlegrar bindingar og hita til orkuvinnslu frá starfsemi Elkem. Í framhaldi af undirritun hefur verkefnið verið skilgreint undir heitinu Grænar Grundir, þar sem unnið er að fimm meginverkefnum: varmavirkjun, raforkuöflun, kolefnisföngun, kolefnisbindingu og þróun lagaumhverfis og hvata.

Tvö þessara verkefna, kolefnisföngun og -binding tengjast beint frávikum frá BAT-kröfum (bestu aðgengilegu tækni) í reykhreinsivirkjum Elkem. Carbfix og Elkem hafa verið í samstarfi um þetta verkefni í langan tíma en verkefnin eru nú komin mun nær framkvæmdastig, með raunhæfum tækifærum til árangurs. Þetta er mikilvægt bæði verkefni fyrir Carbfix, Elkem Ísland og fyrir markmið Íslands um kolefnishlutleysi.

Viljayfirlýsingin miðar að því að lágmarka, eða eftir atvikum útiloka, losun CO₂ í andrúms-loftið frá starfsemi Elkem. Verkefnið felur meðal annars í sér föngun og niðurdælingu CO₂, auk orkuendurvinnslu. Með samræmdri og samþættri nálgun, í samræmi við BAT, er tryggt að umhverfiskröfur séu uppfylltar og jafnframt lagður grunnur að lægri heildar-kostnaði til lengri tíma. Með þessu styrkjum við stöðu Íslands sem leiðandi aðila í grænni iðnþróun.

Elkem Ísland hefur sett það markmið að starfsemin verði með öllu kolefnishlutlaus eigi síðar en árið 2040 sem þýðir jafnframt að Elkem Ísland verður fyrsta kolefnishlutlausa kísilmálmsverksmiðjan í Evrópu. Þessi vegferð er hafin og styrkir framangreind verkefni markmið fyrirtækisins umtalsvert.

Kísilmálmur þjónar bættri orkunýtingu og orkuskiptum
Í yfir hundrað ár hefur Elkem samsteypan verið frumkvöðull í tækniþróun í kísiliðnaði og haft frumkvæði að þróun lausna á sviði umhverfismála. Elkem Ísland framleiðir og selur kísilmálm (sem í daglegu tali er kallað FeSi eðakísiljárn) með 65% - 75% kísil. Restin er aðallega járn og önnur snefilefni (Al, Ca, Ti, C). Málmurinn er sérhæfður til íblöndunar í stáliðnaði og í járnsteypu og sérsníðir fyrirtækið framleiðslu sína fyrir viðskiptavini um allan heim og framleiðir nú um 170 mismunandi tegundir af málmi. Fyrirtækið notar vistvæna vatnsaflsorku við framleiðslu sína og er framleiðslan bæði vottuð samkvæmt gæðastjórnunar- og umhverfisstjórnunarstöðlum. 

Megnið af málminum fer í rafmagnsstál og annan búnað sem bætir orkunýtingu rafmótora, t.d. í rafbílum og vindmyllum. Þannig er framleiðsluvara Elkem Ísland mikilvæg fyrir orkuskipti heimsins m.a. til þess að sporna við hnattrænni hlýnun. Starfsfólk Elkem Ísland eru því þátttakendur í að ná fram heimsmarkmiðum á sviði loftlagsmála. 

Verðmæti á villigötum

Nýsköpun hjá Elkem Ísland skilar umhverfislegum ávinningi

Elkem hefurtekið stór skref í áttina að sjálfbærri meðferð og skilvirkri nýtingu náttúruauðlinda. Það er stefna Elkem Ísland að endurvinna og endurnýta allar aukaafurðir sem falla til við framleiðsluna, lágmarka sóun og auka sjálfbærni rekstrarins. Með því að nýta fínefni og aukaafurðir í framleiðslunni minnkarútblástur gróðurhúsalofttegunda, notkun hráefna og raforku. Elkem hefur tekist að útbúa sjálfbæra lausn sem er umhverfisvæn og hefur fjárhagslegan og rekstrarlegan ávinning og þar með lagt lóð sín á vogarskálarnar til að draga úr hlýnun jarðar, stuðla að skilvirkri nýtingu náttúruauðlinda á heimsvísu og bæta nýtingu raforku á Íslandi. Nýsköpun hjá Elkem við að hanna hráefni dregur úrnotkun auðlinda sem unnar eru úr jörðu, minnkar úrgang um allt að 10.000 tonn áári og sparar útblástur gróðurhúsalofttegunda vegna flutnings.

Fínefni
Elkem hefur unnið markvisst að því að nýta aukaafurðir framleiðsluferilsins sem annars eru seldar eða urðaðar. Ein af aukaafurðum sem falla til við framleiðsluna eru fínefni. Fínefnin eru áfram notuð í framleiðslunni til þess að stýra betur hitastigi og vegna fjárhagslegs ábóta. Við íblöndun fínefna tapaðist hátt í 40% sem endaði ýmist í afsogskerfinu, á gólfinu eða í hliðum á deiglunum. Frá 2016 hefur Elkem markvist aukið nýtingu fínefna við íblöndun til þess að skapa betra vinnuumhverfi við töppun og um leið nýta aukaafurðina betur með bættum búnaði með nýsköpun að leiðarljósi. Í dag erum við að fullnýta fínefni við íblöndun á öllum ofnum verksmiðjunnar. Að auki erum við að nota hluta af fínefnum sem falla frá við framleiðsluna sem ekki er nýtt við íblöndun eða sölu sem hráefni inná ofn

Forskiljuryk
Auk fínefna, myndast forskiljuryk við síun á afsogsryki frá ofnum sem er urðað í flæðigryfju.  Á ári hverju eru u.þ.b. 1300 tonn af forskiljuryki urðuð sem hefur bæði neikvæð áhrif á umhverfið sem og er kostnaðarsamt fyrir fyrirtækið. Elkem hefur skoðað endurnýtingu á forskiljurykinu og er það verkefni að verða að veruleika. Í þessu verkefni er forskiljurykið notað til hreinsunar á málminum og kemur að hluta til í staðinn fyrir eitt afokkar hráefnum í hreinsuninni. Markmiðið er að lágmarka losun í flæðigryfjur. Af verkefninu er bæði umhverfislegur og fjárhagslegur ábati.

Uppsóp og annað sem fellur frá við framleiðslu
Í dag seljum við að mestu leyti allt uppsóp verksmiðjunar. Það magn getur verið breytilegt frá ári til árs en að meðaltal 1000 tonn ár hvert.

Forskiljuryk Filtera
Auk fínefna, myndast forskiljuryk við síun á afsogsryki frá ofnum sem er urðað í flæðigryfju.  Á ári hverju eru u.þ.b. 1300 tonn af forskiljuryki urðuð sem hefur bæði neikvæð áhrif á umhverfið sem og er kostnaðarsamt fyrir fyrirtækið. Elkem hefur sýnt fram á að hægt sé að endurnýta forskiljurykið til hreinsunar á málminum og kemur að hluta til í staðinn fyrir eitt af okkar hráefnum í hreinsuninni. Markmiðið er að lágmarka losun í flæðigryfjur. Af verkefninu er bæði umhverfislegur og fjárhagslegur ábati.

Afsogsryk við mölun og útsteypingu
Afsogsryk sem myndast við mölun og útsteypingu á kísilmálmi er bæði selt sem fullunnin afurð og endurnýtt aftur inní framleiðsluna. Ár hvert er selt um 850 tonn af afsogsryki sem fullunnin vara og allt afsogsryk við útsteypingu á málmi er endurnýtt aftur í framleiðsluna sem varnalag til að auka nýtingu skála við útsteypingu.

Umbreyting aukaafurða
Elkem flokkar aukaafurðir fyrirtækisins og umbreytir þeim í verðmæti. Ár hvert umbreytum við aukaafurðum með skarpari hugsun og skilvirkri gæðastjórnun og seljum sem fullunnin vara. Í þessu felst að flokka málm úr því sem fellur til við framleiðsluna. Málmurinn fer síðan hefðbundnar leiðir eins og fullunnin vara.  

Betri nýting á gasi við íblæstri í hreinsun málms
Elkem Ísland framleiðir hágæðavörur en til þess þarf stundum að hreinsa málminn. Með hreinsuninni er verið að fjarlægja óæskileg frumefni úr málmbráðinni svo sem Al, Ca og C. Hreinsunin felst í því að blásið er gasi i gegnum málminn. Fram til árins 2025 var gasflæðið ekki reglað, heldur stjórnaðist af viðnámi gegn flæði í kerfinu og því ekki unnt að regla og besta kerfið með góðu móti. Í dag eru tölvustýringar á flæði gasins við hreinsunina og gasið því reglað. Með þessu höfum við bestað málmhreinsunina og endurbræðslu málms sem og nýtingu á flæði gasins í gegnum kerfið.

Bætt nýting hráefna við löndun
Undirbúningur er hafinn á endurbótum á hráefnasvæði þar sem verður haft að leiðarljósi bætt nýting hráefna með minni sóun. Verkefnið fellst meðal annars í að minnka fallhæðir hráefnis og draga þannig úr rykmyndun og fínefnum sem í dag berast í frárennsli eða eru urðuð í flæðigryfju.  

Minnkun á útblæstri frá reykhreinsivikjum
Elkem hefur unnið að því að breyta tæknilegum búnaði í samræmi við BAT (Best available technology) skilgreiningar enn stærsta stóra verkefnið er umbreytaing reykhreinsivirkja með það að leiðarljósi að draga umtalsvert úr losun ryks út í umhverfið sem samhliða stuðlar að bættum rekstri og betri nýtingu í framleiðslu á kísilryki. Með nýrri tækni munum við draga úrlosun á ryki niður fyrir 5 mg/m3.

Hráefni í stað urðunar
Allt frá árinu 1992 hefur fyrirtækið nýtt úrgangstimbur sem hráefni í framleiðslunni. Þannig eru endurunnin um 8.000 - 10.000 tonn árlega. Þetta er eitt umfangs mesta endurvinnsluverkefni á Íslandi. Timbrið kemur að hluta til í staðinn fyrir innflutt kol. Óbein áhrif vegna notkunar timburs eru hins vegar mun meiri ef miðað sé við að timbrið hefði verið urðað á urðunarstað. Við urðun timburs myndast metan sem er öflug gróðurhúsalofttegund.  Losun gróðurhúsalofttegunda við rotnun timburs er mikil eða sem jafngildir um 900 kg af CO2 fyrir hvert tonn. Þar sem timbrið er nýtt sem lífrænt kolefni í framleiðslunni er það kolefnishlutlaust og notkun þess dregur því úr losun koldíoxíðs frá fyrirtækinu.

Árið 2009 gerði Elkem Ísland samstarfssamning við Skógrækt ríkisins um nýtingu á grisjunar viði frá Skógræktinni. Lítill markaður hefur verið fyrir grisjunarviðinn til þessa en nýtist nú sem hráefni fyrir framleiðslu á kísilmálmi í stað kola. Þetta verkefni hefur stutt Skógræktina í að koma upp tækjabúnaði, öðlast þekkingu og reynslu í umfangmikilli grisjun og miðar að því að gera skógrækt að fjárhagslega sjálfbærri atvinnugrein á Íslandi.

Auk þessa flytur Elkem Ísland inn timbur frá Kanada og Noregi. Allt þetta hefur orðið til þess að dregið hefur úrlosun frá verksmiðjunni á Grundartanga á gróðurhúsa-lofttegundum vegna minni notkunar á kolum um 23,5% eða um tæp 100.000 tonn ári.