Umhverfisþættir og vöktun
Umhverfisþættir eru þeir þættir í starfsemi Elkem Ísland sem geta haft áhrif á umhverfið, til dæmis urðun aukaafurða og losun efna í andrúmsloft. Til umhverfisáhrifa telst einnig nýting á náttúruauðlindum, svo sem orku, vatni, hráefnum og landi.
Umfangsmikil vöktun vegna áhrifa rekstrar Elkem Ísland á umhverfið fer fram allan ársins hring. Vöktunin er tvískipt, annars vegar vöktun á uppsprettuþáttum innan lóðar Elkem Ísland og hins vegar vöktun á þáttum utan lóðar Elkem Ísland sem er sameiginleg umhverfisvöktun iðnfyrirtækjanna á Grundartanga.
Niðurstöður vöktunar ársins 2021 leiða í ljós að öll viðmiðunarmörk fyrir vöktunarþætti, sem sett eru fram í starfsleyfi Elkem Ísland og er að finna í reglugerðum sem eiga um fyrirtækið, eru uppfyllt í öllum tilfellum nema einu þar sem ryk í mölunarlínu 1 er yfir viðmiðunarmörk.
Helstu samstarfsaðilar eru:
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Náttúrufræðistofnun
- Rannsóknarmiðstöð í sjávarlíffræði
- Háskóli Íslands
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Matís
- Skógrækt ríkisins
- Verkfræðistofan Vista
Umhverfisstofnun hefur eftirlit með niðurstöðum allra vöktunarþátta.